Sjúkrasjóður Vlf Suðurlands veitir félagsmönnum ýmsa styrki, m.a. vegna sjúkraþjálfunar, skoðunargjald vegna krabbameinsskoðunar/hjartavernd, dvöl hjá heilsustofnun NLFÍ, áfengismeðferðar og flr.
Samanlagðir styrkir samkvæmt fyrrgreindum liðum er að hámarki 65.000 kr pr einstakling á hverju 12.mánaða tímabili fyrir fullgreiðandi einstakling.
ATH.
Grundvöllur styrkveitinga úr sjúkrasjóði;
Þeir sem sannarlega greiða sjóðsins þegar réttur til aðstoðar myndast.
Þeir sem greitt hefur verið af til sjóðsins 1% iðgjald í a.m.k 6.mánuði eða meira.
Sækja þarf um styrk úr sjóðnum innan 6.mánaða frá því að greiðslum lýkur í sjóðinn.
Réttur til styrks úr sjóðnum fyrnist sé hans ekki vitjað innan 6 mánaða frá því er bótaréttur skapast.