Dagpeningar

Félagsmenn Vlf Suðurlands geta sótt um sjúkradagpeninga hjá sjúkrasjóði félagsins eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda er lokið.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja sjóðsfélaga sem missa vinnutekjur vegna sjúkdóma eða slysa með greiðslu dagpeninga svo og greiðslu útfarakostnaðar eftir þeim skilyrðum sem sett eru í reglugerð sjúkrasjóðsins. 

Þegar sótt er um dagpeninga þarf að skila inn;

  • Læknisvottorði frá viðkomandi lækni.
  • Vottorði frá vinnuveitanda, með upplýsingum um hvenær samningsbundinni- og eða lögboðinni launagreiðslu atvinnurekanda lauk. 
  • Skattkorti.
  • Öðrum gögnum sem við á, t.d. frá T.R.
  • UMSÓKN UM DAGPENINGA
  • VOTTORÐ LAUNAGREIÐANDA        

          

REGLUGERÐ

ATH. Réttur til styrks úr sjóðnum fyrnist sé hans ekki vitjað innan 6 mánaða frá því er bótaréttur skapast.


    

Verkalýðsfélag Suðurlands  l  Suðurlandsvegi  3 l  850 Hella  l  Sími 487 5000  l  Fax 487 5003 l  vs@vlfs.is  l  Opið Mán - Fös 9 - 16