Hver er orlofsuppbótin fyrir árið 2010?
Samningur SA og SGS...
Orlofsuppbót er fyrir hvert unnið orlofsár (1.maí - 30.apríl) greitt er hlutfallslega fyrir hlutastarf.
Uppbótin greiðist þann 1.júní ár hvert, öllum starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30 apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí.
Á árinu 2010 er uppbótin 25.800-
Samningur SGS við ríkissjóð...
Hinn 1.júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30.apríl næst á undan fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum.
Á árinu 2010 er uppbótin 25.800-
Orlofsuppbót í flatarmældri ræstingu ákvarðast af fermetrafjölda sem greiddur er tímabilið 1.júní - 30.apríl þannig að 833,33 fermetrar á mánuði teljast fullt starf og færri fermetrar reiknast hlutfallslega.
Samningur SGS og LN...
Hinn 1. maí ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða (13 vikna) samfellt starf á orlofsárinu skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitenda lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofslaun.
Á árinu 2010 er uppbótin 25.800-
Samningur við Flugleiðahótel vegna sumarhótela.
Orlofsuppbót skal greiða til viðbótar tímakaupi á unnar stundir í dagvinnu;
Kr 14 á dagvinnustund á árinu 2009
Ofangreindar greiðslur (á við um orlofs- og desemberuppbót) eru innifaldar í launaauka, nái launaauki kr 36,01 á unna dagvinnustund árið 2008 og er þá ekki þörf á að sundurgreina það á launaseðli.