Tjaldvagn, combi camp

Verkalýðsfélag Suðurlands hefur einn tjaldvagn til umráða sem það leigir út til félagsmanna sinna.
Sumarleiga er frá byrjun Júní til loka Ágúst.

Vikuleiga er 13.000 kr og er leigutími frá kl:16:00 á fimmtudegi til 16:00 á miðvikudegi. Framvísa þarf kreditkorti sem tryggingu á leigusamningi.

Tjaldvgninn er af gerðinni Combi Camp Venezia, með 2 svefnstæðum og geta 4 fullorðnir eða 2 fullorðnir og 3 börn sofið í vagninum.


Með vagninum fylgja gashellur, gaskútur, borð og 4 stólar. Engin áhöld fylgja og þurfa leigjendur að koma með það sjálfir.

Fortjald fylgir vagninum og er það innifalið í verðinu. Með fortjaldinu fylgir líka aukaborð og botn. Stærð á fortjaldi er 250*370.
Geymslukassi er á vagninum.


Það er bæði auðvelt, þægilegt og fljótlegt að tjalda Combi Camp tjaldvagninum.


EKKI er leyfilegt að vera með gæludýr í tjaldvagninum og reykingar eru STRANGLEAGA bannaðar innandyra, sem og í fortjaldinu.

Umsjón með tjaldvagninum hefur Tjaldborg, Dynskálum 30, Hellu
 487-5928, sem sér um að afhenda og fara yfir vagninn að leigutíma loknum.

 Skilmálar á leigusamningi.


                Tenglar

Heimasíða Combi Camp


 


Verkalýðsfélag Suðurlands  l  Suðurlandsvegi  3 l  850 Hella  l  Sími 487 5000  l  Fax 487 5003 l  vs@vlfs.is  l  Opið Mán - Fös 9 - 16