Vorið 2007 festi félagið kaup á bjartri 86m2 íbúð í Kópavogi. Hún er á 1.hæð í lyftublokk, byggt 2004. Sérmerkt stæði er í bílageymslu.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi og hitt með kojum (efri koja 90 cm og neðri 140 cm) og eru því svefnstæði fyrir 5 manns. Auk þess eru ferðabeddar í geymslu. Í þvottahúsinu sem er inní íbúðinni er þvottavél. Sængur fylgja en taka þarf með sér lín, tuskur og þurrkustykki. Gasgrill, borð og stólar eru á svölum.
Leigugjald:
1.Sólarhringur: 3.000 kr.
2.Sólarhringar: 6.000 kr.
Hver umframsólarhringur: 2.500 kr.
Vikuleiga: 17.000 kr.
Verkalýðsfélagið er umsjónaraðili fyrir íbúðina og eru lyklarnir afhentir á skrifstofunni á Hellu.
MYNDIR. (ef þið smellið á myndirnar stækka þær.)
Umgengnisreglur í íbúðinni;
Leigjandi ber ábyrgð á íbúðinni og öllum búnaði meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum, eða annarra á hans vegum. Honum ber að tilkynna strax ef um einhverjar skemmdir verður að ræða, á skrifstofu félagsins.