Reykjaskógur, Árnessýslu

Félagið á orlofshús í Reykjaskógi, Árnessýslu. Húsið er hið glæsilegasta, 75 fermetrar og búið öllum helstu þægindum. Heitur pottur með nuddi er við húsið.

Það eru 3 svefnherbergi, eitt með hjónarúmi og tvö eru með kojum, í öðru þeirra er neðri kojan tvíbreið, en í hinu er neðri kojan ein og hálf breidd, svefnstæði eru því fyrir 8 manns og fylgja 8 sængur/koddar. Ferðabarnarúm er inní hjónaherbergi.
Gasgrill og kolagrill er við húsið.

Leigugjald:
          Helgarleiga (föstud-sunnud) 7.500 kr, ekki í boði yfir sumartíma.
          Vikuleiga (föstud-föstud) 17.000 kr


Nokkur atriði sem þarf að hafa í huga áður en haldið er af stað;
 
Taka með sér lín(sængurver og lök).
Borðtuskur, þurrkustykki. WC pappír og eldhúsrúllupappír.
Kol og olíu fyrir grillið.
og svo að sjálfsögðu góða skapið.

Fyrir brottför;
Gæta þarf að ganga vel frá húsinu. Sjónvarp og útvarp tekið úr sambandi . Allir gluggar vel lokaðir, gardínur hafðar niðri, lokaðar.Leirtau þrifið og gólf skúrað. Allar dyr læstar. Pottur þrifinn og gengið frá honum.
Ekki gleyma geymslunni.


Hreingerningarvörur eru til staðar. Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins.

MYNDIR


Umgengnisreglur í húsinu;
Leigjandi ber ábyrgð á húsinu og öllum búnaði meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum, eða annarra á hans vegum. Honum ber að tilkynna strax ef um einhverjar skemmdir verður að ræða, á skrifstofu félagsins.

Ekki er leyfilegt að vera með gæludýr inní húsinu.
REYKINGAR ERU BANNAÐAR  INNI Í HÚSINU.

Leigjandi skal ganga vel um húsið og skila því hreinu við brottför og gæta þess að hver hlutur sé á sínum stað. 


       Meira um Árnessýslu

Kort af Reykjaskógi, smelltu á myndina til að stækka 
Reykjaskógur er í landi
Efri-Reykja, skammt austan við Laugarvatn.

Stutt er í gólfvöll og sundlaug er í Úthlíð, sem og veitingastaður.

Ekki má gleyma svo Gullfoss og Geysi sem eru í næsta nágrenni.

Heimasíða Bláskógabyggðar.

 


Verkalýðsfélag Suðurlands  l  Suðurlandsvegi  3 l  850 Hella  l  Sími 487 5000  l  Fax 487 5003 l  vs@vlfs.is  l  Opið Mán - Fös 9 - 16