Furulundur 10d, 600 Akureyri

Félagið á orlofsíbúð að Furulundi 10d, Akureyri. Íbúðin er á annari hæð og er gengið inní hana af svölum hússins. 
 
Íbúðin er um 50 fm að stærð með tveimur herbergjum, kojum í öðru en í hinu eru tvo rúm sem hægt er að setja saman. Sængur og sængurver fylgja íbúðinni, en taka þarf með sér borðtuskur og þurrkustykki.
Kolagrill er að svölum.


Leigugjald:
          Helgarleiga (föstud-sunnud) 7.500 kr, ekki í boði yfir sumartíma.
          Vikuleiga (föstud-föstud) 15.000 kr


Securitas er umsjónaraðili fyrir íbúðina og eru lyklar afhentir á skrifstofu Securitas, Tryggvabraut 10, Akureyri.

MYNDIR (smellið á myndirnar til að fá stórar myndir)

Umgengnisreglur í íbúðinni;
Leigjandi ber ábyrgð á íbúðinni og öllum búnaði meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum, eða annarra á hans vegum. Honum ber að tilkynna strax ef um einhverjar skemmdir verður að ræða, á skrifstofu félagsins.

Ekki er leyfilegt að vera með gæludýr inní íbúðinni.
REYKINGAR ERU BANNAÐAR  INNI Í ÍBÚÐINNI.

Leigjandi skal ganga vel um húsið og skila því hreinu við brottför og gæta þess að hver hlutur sé á sínum stað. 


       Meira um Akureyri

  smellið á myndina til að stækka

Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins og bærinn sjálfur er vinsæll áningastaður um lengri eða skemmri tíma.

Heimasíða Akureyri 


Verkalýðsfélag Suðurlands  l  Suðurlandsvegi  3 l  850 Hella  l  Sími 487 5000  l  Fax 487 5003 l  vs@vlfs.is  l  Opið Mán - Fös 9 - 16