Fellihýsi, Viking

Verkalýðsfélag Suðurlands hefur eitt fellihýsi til umráða sem það leigir út til félagsmanna, það hefur verið mjög vinsælt undanfarin ár og er vel nýtt. Sumarleiga er frá byrjun Júní til loka Ágúst.
 

Vikuleiga er 17.000 kr og er leigutími frá kl:16:00 á fimmtudegi til 16:00 á miðvikudegi. Framvísa þarf kreditkorti sem tryggingu á leigusamningi.

Fellihýsi félagsins er Viking Epic og er 9 fet,  það er með 2 svefnskálum og er hægt að breyta borðkróknum í svefnstæði líka, þannig að 4 fullorðnir og 2 börn/unglingar geta sofið í hýsinu.


Það sem fylgir með fellihýsinu eru tæki þ.e. gaseldavél, gaskútur og flr. Vaskur er inni og er á honum handpumpa. Engin áhöld fylgja og þurfa leigjendur að koma með það sjálfir.


Fortjald fylgir með til leigutaka og er það innifalið í verðinu.

Í fellihýsinu er gasknúin miðstöð sem hægt er að stilla til að halda hita í hýsinu yfir nótt.

EKKI er leyfilegt að vera með gæludýr í fellihýsinu og reykingar eru STRANGLEAGA bannaðar innandyra, sem og í fortjaldinu.

Umsjón með fellihýsinu hefur Tjaldborg, Dynskálum 30, Hellu
 487-5928, sem sér um að afhenda og fara yfir hýsið að leigutíma loknum. 

 Skilmálar á leigusamningi.

 





 

                Tenglar

   Heimasíða Viking


Verkalýðsfélag Suðurlands  l  Suðurlandsvegi  3 l  850 Hella  l  Sími 487 5000  l  Fax 487 5003 l  vs@vlfs.is  l  Opið Mán - Fös 9 - 16