Desemberuppbót 2011

 

Hver er desemberuppbótin fyrir árið 2011?

Samningur SA og SGS...

  • Almenni samningur, iðnverkafólk og þjónustusamningur.

Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið í sama fyrirtæki og eru við störf í fyrirtækinu í síðustu viku í nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15.desember ár hvert fá greidda sérstaka eingreiðslu, desemberuppbót.

Starfsfólk í hlutastarfi sem uppfyllir sömu skilyrði skal fá greitt hlutfallslega. Uppgjörstímabilið er almanaksárið, en fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira, fyrir utan orlof. Starfsfólk með skemmri starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma sinn.

Á árinu 2011 er uppbótin 48.800- en samið var sérstaklega um 15.000 kr álag á uppbótina.

Desemberuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum.
                Á árinu 2011 greiðist því alls í desemberuppbót 63.800-


Samningur SGS við ríkissjóð...

  • Starfsfólk hjá ríkinu

Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda desemberuppbót 1.desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1.janúar til 31.október. Desemberuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé.

Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili.
Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k 3 mánuði(13 vikur) á árinu, fá greidda desemberuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall.

Á árinu 2011 er uppbótin 48.800- en samið var sérstaklega um 15.000 kr álag á uppbótina.

Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunnar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs. 

 Desemberuppbót í flatarmældri ræstingu ákvarðast af fermetrafjölda sem greiddur er tímabilið 1.janúar - 31.október þannig að 833,33 fermetrar á mánuði teljast fullt starf og færri fermetrar reiknast hlutfallslega. 

  
                Á árinu 2011 greiðist því alls í desemberuppbót 63.800-


Samningur SGS og LN... 

  • Starfsfólk hjá sveitarfélögum.

Starfsfólk í fullu starfi fær greidda desemberuppbót (persónuuppbót)  1.desember ár hvert. Með fullu starfi er átt við 100% starf tímabilið 1.janúar til 30.nóvember sama ár. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall og/eða starfstíma, þó þannig að hann hafi starfað samfellt a.m.k. frá 1.september það ár.

Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu, en hafði þá starfað samfellt í a.m.k. 6 mánuði skal einnig fá greidda desemberuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu. Hlutfall skv. þessari málsgrein er reiknað sem hlutfall af flullri vinnu (100%) í 12 mánuði á almanaksárinu af síðast gildandi desemberuppbót.

Framangreind desemberuppbót er með inniföldu orlofi og greiðist sjálfstætt og án tengsla við laun.
 

                 Á árinu 2011 er uppbótin 75.500-


   

              Félag til framtíðar


Verkalýðsfélag Suðurlands  l  Suðurlandsvegi  3 l  850 Hella  l  Sími 487 5000  l  Fax 487 5003 l  vs@vlfs.is  l  Opið Mán - Fös 9 - 16