Verkalýðsfélag Suðurlands var formlega stofnað að Fossbúð, Austur-Eyjafjöllum 1.desember 2001. Stofnendur voru félagsmenn þriggja verkalýðsfélaga á Suðurlandi.
Frá stofnfundi 1.des 2001
Þau voru Rangæingur Verkalýðsfélag, Verkalýðsfélagið Samherjar og Verkalýðsfélagið Víkingur. Nýja sameinaða félagið þjónar svæðinu frá Þjórsá í vestri að Lómagnúpi í austri. Þetta eru miklar söguslóðir og það má segja að þekktustu viðburðir Íslandssögunnar hafi gerst á þessum slóðum eða sjálf Njála.
Tilgangurinn með stofnun félagsins var að gera félagssvæði þessara sameinuðu félaga virkara með öflugri og markvissri þjónustu. Fyrsta verkefni eftir sameininguna var gerð nýrra kjarasamninga.
Við sameininguna voru samankomin í einu félagi um 567 skráðir félagsmenn og síðan hefur þeim fjölgað jafnt og þétt utan eitt ár sem fækkaði lítilsháttar. Í dag eru skráðir félagsmenn um 678 hefur þá fjölgað um 111 manns eða 19,58%.