Í maí mánuði 2018 hélt skrifstofa ASÍ í fundarherferð um landið þar sem haldnir voru 10 fundir til að undirbúa 43. þing Alþýðusambandsins sem fer fram 24.-26. október 2018.

Á fundunum voru þrjú af viðfangsefni þingsins kynnt með stuttum framsögum auk þess sem Gylfi Arnbjörnsson hélt erindi um áskoranir á vinnumarkaði og valkosti í kjarabaráttu (sjá hér ). Þá ávarpaði formaður stéttarfélags á staðnum hvern fund. Eftirfarandi málefni voru til umfjöllunar:

a. Tekjuskipting og jöfnuður
b. Tækniþróun og skipulag vinnunnar
c. Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs

Tilgangur fundanna var að auðvelda þátttakendum að tjá sig um það sem á þeim brennur, kynna þeim viðfangsefnin og gera þeim kleift að koma með ábendingar og tillögur að áherslum og aðgerðum af hálfu Alþýðusambandsins og aðildarfélaganna. Notast var við fundarform sem byggir á sem mestri virkni fundarmanna.

Eftir seinni fundarröðina sem farin verður í september (þá verður rætt um húsnæðis- og velferðarmál) verða lögð fyrir miðstjórn drög að stefnuyfirlýsingu og aðgerðaráætlun byggð á niðurstöðum fundanna, sem síðan verður lögð fyrir 43. þing ASÍ til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.

Verkalýðsfélag Suðurlands tók þátt í fundinum sem haldinn var á Selfossi, meðfylgjandi eru helstu niðurstöður fundarins. nidurstodur-selfoss – Copy

Niðurstöður annarra funda má sjá á heimasíðu ASÍ