Atkvæðagreiðslu lýkur Sunnudaginn 9. febrúar kl 12:00

Þá fer kosningu um nýjan kjarasamning við Samband Íslenskra Sveitarfélaga senn að ljúka og viljum við minna okkar félagsmenn sem atkvæðisrétt hafa í kosningum að kjósa.

Hvernig á að greiða atkvæði?
Til að greiða atkvæði með rafrænum hætti smellir viðkomandi á hnappinn hér að neðan og skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Eftir innskráningu birtist atkvæðaseðilinn og getur viðkomandi þá greitt atkvæði. Athugið að kosningin verður ekki virk fyrr en kl. 12:00 mánudaginn 3. febrúar.

Smellið hér til að kjósa

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði.

Starfsgreinasambandið hefur útbúið upplýsingasíðu þar sem sjá má hvað nýr kjarasamningur við sveitarfélögin inniheldur. Við hvetjum alla félagsmenn sem vinna undir þessum samningi að kynna sér hann vel. Á síðunni má m.a. finna kynningarbækling sem sendur verður í pósti á alla félagsmenn á kjörskrá og samninginn í heild fyrir árin 2020 til 2023, þ.e. bókin í heild

Sjá nánar hér