» Fréttir

Taxtahækkun 1.júní 2010
Þann 1.júní 2010 hækkuðu laun um 2,5%. Hafi laun hækkað meira vegna sérstakrar hækkunar kauptaxta (6.500 kr) gildir sú hækkun.
 
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, skulu vera sem hér segir fyrir starfsmann 18.ára og eldri og hafa starfað í 4 mánuði hjá sama fyrirtæki kr 165,000. Mánaðarlega skal greiða uppbót á laun viðkomandi starfsmanna sem ekki ná framangreindum tekjum, en til launa í þessu sambandi teljast allar greiðslur, þ.m.t. hverskonar bónus-, álags- og aukagreiðslur, sem falla til innan ofangreinds vinnutíma. Laun fyrir vinnu umfram 173,33 stundir á mánuði og endurgjald á útlögðum kostnaði reiknast ekki með í þessu sambandi.


Verkalýðsfélag Suðurlands  l  Suðurlandsvegi  3 l  850 Hella  l  Sími 487 5000  l  Fax 487 5003 l  vs@vlfs.is  l  Opið Mán - Fös 9 - 16